Það er ekki sniðugt, ég tala af reynslu. Mitt var skakkt (ég er reyndar líklega með smá hryggskekkju, það var m.a.s vesen fyrir Sessu að fá mig beina!) þegar ég gerði þetta í mig (vinkona min) þegar ég var yngri, ég fékk líka sýkingu og það er svakalega óþægilegt. Eiginlega bara vont ! Við pössuðum samt upp á hreinlæti og vorum með almennilega nál og lokk, samt fór þetta úrskeiðis.
Ég tók þetta svo úr á endanum vegna þess að mamma mín komst að þessu og þetta var eitthvað sem búið var að banna mér. Það er mjög vandasamt að gera þetta þráðbeint og vel.
Það er mikil sýkingarhætta fyrir hendi alltaf og sérstaklega með naflann. Má ég nokkuð spyrja þig fyrir forvitnissakir hvers vegna þú ferð ekki á stofu ?
Ég er enginn sérfræðingur og ég get ekki sagt þér nákvæmlega hvað getur gerst en ég mæli á móti þessu. Sýkingar geta orðið all svaðalegar.