Það er örugglega álíka sársauki, kannski meiri, og önnur göt. Þetta eru samt erfiðari göt og eru lengur að gróa. Mig langar sjálfri í svona og ég hef tala við Sessu og hún vill helst ekki gera það (og hún er sú eina sem ég treysti með svona). Hún bendir manni frekar á annað fólk (útlendinga) sem sérhæfa sig í því. Málið er líka að það þarf sér lokka sem þarf að sérsmíða og hún hefur ekki tækin til að smíða þá.
Hún sagði mér frá manni sem er að fara að koma í…sumar, held ég, sem gerir þetta og hún mælir með honum.
Annað er að það er svo mikil hætta á að líkaminn hafni lokknum þannig að hún gerir þetta helst ekki, vegna þess að hún hefur ekki réttu tólin, svo að fólk sé ekki að borga fyrir þetta og síðan þarf að taka það úr…
Annars mæli ég ekki að þú fáir þér surface göt svona ung en það er þitt mál =P
Ertu með önnur göt? Fyrir utan eyrun sko…