Þú átt eftir að fá milljón mismunandi svör..
Ég hef mjög góða reynslu af tattooi hjá Sverri í House of pain enda eini núlifandi Íslendingurinn sem hefur flúrað mig (blessuð sé minning Helga) .. Hef heyrt að Jón Páll hjá Íslenzku húðflúrstofunni sé killer flúrari og miðað við það sem ég hef séð eftir hann þá get ég ekki annað en verið sammála. Hann gerir reyndar bara þessi stóru flúr (sleeve, half sleeve, full back o.s.frv.) Búri er að koma sterkur inn en hann er á sömu stofu og Jón Páll. Hef heyrt góða hluti um Vincent og held hann sé að sérhæfa sig í dark og demonic flúrum?
Sessa er víst að meika það í götun þessa dagana ;)
Þessi eru svona þau helstu í augnablikinu myndi ég segja.. Allavega þau vinsælustu