Í alvöru? Ég hef heyrt að það geti (í fáum tilvikum, en samt) haft slæm áhrif á taugaenda í eyrunum. Ef að snepillinn er of þykkur eða eitthvað þannig, að lokkurinn kremji of fast. Og svo er líka erfitt að sótthreinsa byssuna sjálfa..
Systir mín endaði hjá lækni útaf einhverju rugli með gat og byrjendalokk og eitthvað, og ég vil kenna byssunni um það :p götin eru ónýt núna.
Ég persónulega hata þessa “byrjendalokka” sem maður fær með byssunum. Þeir eru óþægilegastir í geimi..
Mamma er í vandræðum með systur mína núna, því að mamma er með fordóma gegn tattoo-dóti, og vill ekki að tattooverari (eða einhver á tattoostofu) geri gat í systur mína. Og hún vill heldur ekki að það sé gert með byssu :p
…