Skellti mér í Tattoo & Skart áðan og fékk mér tvö göt, eitt helix öðru megin og annað gat í eyrnasnepilinn hinumegin.
Konan sagði mér að ég ætti að nota einhverja Neutral sápu til að þvo þetta þegar ég fer í sturtu. Veit einhver nákvæmlega hvernig sápu hún er að tala um?
Ég googlaði þetta en kannaðist ekki við neinar myndir, vill einhver senda mér link á mynd til að ég viti hvað ég á að kaupa?
Anyway, ég er ótrúlega ánægð með þetta, það var soldið vont þegar hún setti lokkinn í brjóskina af því að það þurfti að snúa og svoleiðis en það gekk fljótt yfir ^^