Fékk mér gat í augabrún fyrr í dag.
EKKI fara á Hókus Pókus. Ógeðslegur staður. Fór á Tattoo & Skart og er vægast sagt hæst ánægður :D
alveg frábær konan sem að gataði mig, Sessa. Yndisleg og vingjarnleg, og bara, algjör fagmaður.
Gataði hægri augabrún, merkti fyrst, og spurði mig svo um álit, hvar ég vildi hafa þetta. Mér fannst staðurinn henta vel. Svo lagðist ég niður (þetta var svona bekkur / stóll. Hún klemmdi húðina saman með töng, og stakk svo með nál í gegn. Ég tek sársauka nokkuð vel, þannig að það er kannski ekki að marka mig, en ég fann bara svona smá sting, en svo fannst mér þetta dofna. Fer örugglega mikið eftir manneskjunni :)
Svo núna lítur þetta bara vel út :)
Aftur á móti fékk ég blað með umhirðu um svona lagað, og það stendur 8-10 vikur að gróa hjá mér, ekki 4-6 eins og stendur í greininni þarna.
En ég er kátur :D
Blesbles
Hafðu Efni Á Því Sem Þú Segir