Veit einhver hvað það kostar að fá sér gat í augabrún og í kringum varirnar (eins og t.d. hér eða hér).
Einnig hvað það kostar að fá byrjunarpinna, og úr hverju er best að hafa hann. Læknastáli? Títaníum?
Hvernig reynslu hafið þið annars haft af götunum á þessum svæðum, hvort er verra? Hvar létuð þið gera þetta?
Mælið þið með einhverjum sérstökum stofum?
Ég var að pæla í að fara á Tattú og Skart af því að ég hef ekkert heyrt nema góða hluti þaðan :)
Annars veit ég ekki hvort að ég fái leyfi….
Hef verið að reyna að sannfæra mömmu í marga mánuði um að leyfa mér þetta, hún var búin að gefa leyfi og ég var alveg himinglöð :D Svo fékk ég ofnæmi fyrir lit til að lita augabrúnir og hún bakkaði algjörlega út, núna neitar hún að tala um þetta…þykist vera alveg viss um að ég eigi eftir að fá ofnæmi fyrir þessu líka :/
Hún leyfir mér ekki einu sinni að klippa hárið á mér stutt, ég má eyðileggja hárið mitt og líkama þegar ég er orðin fullorðin segir hún….. Með alls engin rök!
Ef einhver hér hefur reynslu eða hefur góð ráð um að sannfæra hana um þetta, endilega látið mig vita! Ég get ekki beðið þar til ég verð orðin átján :(
Kv, Demona