ég fékk fyrstu í eyrun þegar ég var pínulítil og veit ekkert hvaðan þau koma… hin 4 í sneplunum gerði ég sjálf, og lét gera þetta í brjóskinu á einhverju flippi þegar ég var 14 ára í London. Svo gerði Fjölnir þetta í naflanum og það er ekki vel gert ef ég á að segja eins og er. Sverrir gerði í tunguna, það er allt eins og það á að vera. Vinur minn gerði í nefið á mér en hann var að læra þá, það er líka eins og það á að vera.
Og það nýjasta var gert hér í DK af konu og það er bara það BESTA!! Hef ALDREI hitt neinn gatara sem er jafn ábyrgðarfullur og veit jafnmikið um svona og hana. Það er bara thumbs up:)