Ég var alls ekkert að kalla föður þinn slæma manneskju, ég er bara að segja að eitthvað svona eins drastískt og óafturkallanlegt og tattoo ætti bara að vera prinsipp-nei þegar 12 ára manneskja á í hlut - sama hverjar aðstæðurnar eru.
Hver fullorðin manneskja sem er að ala upp barn ætti að hafa næga skynsemi til að sjá það, eins og mér sýnist gamli þinn hafa fyrst hann dauðsá eftir þessu.
Það er stórgott að þú ert sátt með húðflúrið, þetta hefði samt aldrei átt að gerast.