Kæri Súperman,
Það skal ekki alhæfa að allir arabar séu sprengjuglaðir þó að örfáir séu það!! Sumir sprengja flugelda til að pirra aðra, hinir sprengja þá sér til skemmtunar. ég held ekki að allir sem gera þetta séu að reyna að “bögga” aðra, einungis fundið það skemmtileg tilviljun að vera fyrstur/fyrst.
fólk flest finnst ábyggilega böggandi að fólk blási framan í sig. væri þá bara allt í lagi og ekkert mál ef ég mundi labba niður í bæ og blása framan á fólki sem að löbbuðu framhjá mér, bara af því að það er ekki ólöglegt?
Bíddu, hvað áttu við með þessu, ertu að segja að þessi aðili sem bætir hérna við örlitlum texta hafi vísvitandi ætlað að bögga ÞIG. Þá held ég að þú sért að verða aðeins of merkileg/ur með þig.
ég vill meina það að það séu um 90% á móti þessu og finnst þetta vera böggandi. síðan er verið að nota óþarfa pláss fyrir þetta og eins og þú sérð, skapar þetta óþarfi umræður sem hefði mátt sleppa. þess vegna er bara langeinfaldast að sleppa því að monta sig yfir því að vera fyrstur að sjá mynd.
Ég ætla að byrja á því að segja þér að það er aðeins eitt L í vil, annað er bæði mál og stafsetningarvilla, hvort sem þú segirr Vill eða vil. Persónulega finnst mér það forljótt að segja ég Vill í staðinn fyrir vil, en það er bara mín persónulega skoðun.
ég vil meina að það séu aðeins örfáir á huga sem finnst það meira böggandi að sjá eitthvað svona en að sjá kvartið og kveinið í hinum sem eru gjörsamlega að leggjast í þunglyndi útaf þessu.
Bíddu nú við, skapa óþarfa umræður sem hefði mátt sleppa, VARST ÞAÐ EKKI
ÞÚ SEM SKAPAÐIR ÞESSA ALGJÖRLEGA GAGNSLAUSU UMRÆÐU!?!? Það að þú slepptir því ekki bara að væla yfir þessu tók ennþá meira pláss og stuðlar að því að gera Huga að sorphaug væluskjóða!!
ástæðan fyrir því að fólk heldur áfram að gera þetta þó að öðrum finnist þetta vera böggandi, er útaf því að það er ekki bannað.
Ég skal segja þér nokkuð merkilegt:
Lítið barn potar í mann. Maðurinn ýtir aftur við barninu, en í staðinn fyrir að barnið hætti heldur það áfram, og maðurinn ýtir alltaf við því. Barnið endar á því að finnast þetta leikur og endurtekur leikinn í sífellu, og maðurinn losnar ekki við barnið.
Þetta er nokkuð sem kallast sálfræði. ég veit ekki aldur þinn né þroska, en það er svakalega sorglegt að sjá einhvern þykjast vera agalega þroskaður, skamma einhvern fyrir að gera eitthvað, segja að þetta sé svo leiðinlegt, og enda svo á því að segja að eina ástæðan fyrir því að fólk gerir þetta sé sú að öðrum finnist þetta leiðinlegt!!
Þá, góða sál, get ég með sanni sagt að þetta sé þér að kenna, þú ert hvatinn, þú hvetur einstaklingana til þess að gera þetta. þú getur sjálfum/sjálfri þér um kennt. þú vælir yfir þessu, og gefur gerandanum þar með launin sem þú vilt meina að hann sækist eftir. finnst þér furða að þú sjáir þetta svona oft ef þetta er raunin, þú ert bara að gefa hundinum kex fyrir að skíta á gólfið. Ég gef þér vorkun mína og vona að þú lærir eitthvað af þessu!! Það er einfaldlega lang einfaldast að sleppa því að vera með svona vitleysis væl, það er jú alltaf verra að horfa á dauðu fluguna á borði náungans þegar maður tekur ekki eftir flugnagerinu á þínu eigin!!
Ég segi það með þér, við skulum halda Huga hreinum, sleppum tilgangslausu væli og vitleysisgangi. Það er bara sorglegt þegar fólk þarf bara að kvarta og kveina yfir öllu.
Með kveðju,
Aðalbjörn