Það á að vera öllum ljóst að það verður aldrei hægt að gera öllum til geðs þegar kemur að endanlegu vali á leikara í myndum, hvort sem um Harry Potter myndirnar er að ræða eða aðra mynd.
Vissulega er hver og einn með sína skoðun á Ginny, bæði hvað útlit og þroska varðar.
Ég mæli samt með því að fólk bíði eftir því að myndin komi, því þó leikkonan sé fædd 1991 er ekki hægt að afskrifa hana strax. Hafið það einnig í huga að ekki er byrjað að taka upp sjöttu myndina, stelpan á enn eftir að taka út þroska sjálf.