Já…há… ég hef nokkrar skoðanir á þessu myndbandi.
Í fyrsta lagi viðbrögð stelpunar eru óborganleg. Þetta er með því fyndnasta sem ég hef séð.
Í öðru lagi er hægt að finna myndbandið með enskum texta? Langar að vita hvað þau eru að tala um.
Í þriðja lagi greyið stelpan er búin að gera sjálfan sig að fífli fyrir öllu Japan ef ekki öllum heiminum. Ég er risastór aðdáðandi Harry Potter en omg öllu má ofgera. Ég myndi ekki einu sinni láta svona þótt ég myndi hitta Rowling sjálfa og hún á heiðurinn af þessu öllu.
Og í fjórða lagi ég er viss um að hún sefur í þessari skikkju sem hann gaf henni og ég er ekkert örugg um að hún sé búin að þvo sér um hendunar heldur því að það lá við að hún dæi þegar hún fékk að snerta á Daniel andlitið.
En vá þetta var fyndið.
Heimsyfirráð, súkkulaði og Harry Potter.