Já..úff nr. 5. Ég fór með foreldrum mínum sem lesa ekki Harry Potter og þau skildu ekkert hvað var að gerast í myndinni! Og svo var ég búin að hlakka svo mikið til að sjá atriðið þegar Harry Potter er í hughrindinga-tímunum (hétu þeir það ekki annars?) og sér minningu Snapes. Það var svo gjörsamlega eyðilagt í myndinni! Á meðan þessu stóð hnypti mamma í mig og spurði: ,,Hvað er eiginlega að gerast?" Þetta var svo ruglingslegt og allt í móðu.
Foreldrar mínir skildu nr 6 hinsvegar fullkomlega :) Endirinn hefði allveg mátt vera lengri, en mér fannst hann samt eiginlega mátulegur…myndin má ekki vera of löng :)
An eye for an eye makes the whole world blind