Ég hef það mér til afsökunnar að ég er á næturvöktum í sauðburði heima á Vestfjörðum, þetta er í annað eða þriðja sinn sem ég fer í tölvu síðan 14.maí, hinn tíminn fer í að sofa, elta rollur, troða hendinni uppí rassinn á rollum og toga út lömb úr rollum.
Þess vegna hef ég ekki nennt að hafa fyrir því að hafa áhyggjur af þessu blessaða áhugamáli okkar. Nú er tímatal sauðkindarinnar.