Lesið nýjustu tilkynninguna og kynnið ykkur hana vel. Í stuttu máli er hún svona:

Sá sem spillir efni bókarinnar fyrir öðrum án viðvörunar, svo sem með undirskrift eða öðru sem hefur verið nefnt hér að ofan, mun fá langt og strangt bann frá Huga.


Bætt við 18. júlí 2007 - 19:44
Einnig mæli ég með því að fólk sem vill ekki fá að vita hvernig bókin endar loki sig frá umheiminum með því að fara annað hvort í tveggja daga fjallgöngu eða loki sig inni í herbergi með hundrað þúsund andrésblöðum. Persónulega, þá þori ég varla að vera á netinu núna.