BWAH! Hóst hóst… *svelgist á skyrinu og reyni að þurka það mesta af tölvuskjánum*
Ekki segja þetta stelpa! Ég neita alfarið að trúa að Lupin eða Tonks deyji. Þau eiga eftir að eignast litla bleika hvolpa.
Það koma eflaust margir til með að deyja, t.d. Harry, Ron, Hermione, Ginny (yrði ekki hissa ef eitthvert af þeim fjórum myndi ekki sjá endinn), Hagrid, McGonnagall, einhver úr Weasley fjölskyldunni, nokkrir nemendur úr Hogwarts, býst fastlega við að Snape deyji hetjudauða.
En ég neita alfarið að trúa að Lupin eða Tonks deyji.
Þó að Rowling sjálf myndi segja mér það myndi ég samt neita því og skrifa mína eigin bók þar sem því væri breytt.
Kveðja
Tzipporah
Lupin/Tonks fan