Ég hugsaði um þetta líka, en ég komst nánast að því sama og neonballroom. Verður að hugsa að það eru örugglega ekki margir vinir Weasley-anna píndir heima hjá sér, svo þau taka Harry að sér eins oft og þau geta(enda mjög sérstakur). Hermione hefur nú bara komið tvisvar ef ég man rétt til Hreysisins(byrjun 4 og 6 bókar), í 4 bók var svona _MUST_ hlutur sem Hermione hefði ekki séð án Weasley-anna vegna þess að hún er muggabarn. 6 bók var hún við það að kallast kærasta Rons, svo…
Maður verður líka að hugsa út í að galdrakrakkar virðast vera fremur aðskildir, það eru ekki *það* margir galdramenn í heiminum miðað við mugga svo krakkarnir geta ekki leikið sér mikið með öðrum(allavega ekki krakkar í pureblood galdrafjölskyldum), þ.e.a.s. nema systkynum.