Oki. Ég ætla að segja það áður en ég byrja, ég hef ekkert á móti hommum.


En þetta Harry og Draco kjaftæði er orðið “pínu” pirrandi. Mér finnst allt í lagi að það sé verið að gera grín að svona en þegar það eru komnar fimm til sex myndir af Harry og Draco þar sem þeir eru í hommalegri stellingu eða þegar þeir virðast vera nýbúnir að stunda kynlíf þá er þetta orðið svolítið gamalt og húmorinn farinn úr þessu.


Ég er bara að benda á þetta. Hellingur af þessum myndum er vel teiknaður, það er bara húmorinn eða húmorsleysið sem fer í pirrurnar á mér.


Ég veit ekki hvað öðrum finnst en ég er kominn með nóg!