Loksins fann ég staðfestingu á þessu, staðfestingu sem varla er hægt að hrekja, beint frá J.K. það eru FJÓRIR helkrossar sem Harry þarf að eyða ÁÐUR en hann mætir Voldemort.
http://www.madamscoop.org/themes/voldemort.htmGetið séð þetta hér, neðarlega á síðunni en þar segir:
Dumbledore's guesses about how to kill Voldemort are “never very far wide of the mark.” Harry will need to get rid of four horcruxes, and then “go for Voldemort.” Dumbledore has given Harry “some pretty valuable clues” and Harry “has amassed more knowledge than he realizes.” [Read the entire quote from the Leaky Cauldron, 2005]
Þarna segir hún klárlega að það eru fjórir helkrossar eftir auk brotsins í Voldemort, það er búið að eyða hringnum og bókinni, það gera 6, plús Voldemort, samtals sjö, ekkert meira, ekkert minna. Auk þess segir hún að hann ÞURFI að eyða þeim fyrst áður en hann mætir Voldemort, ekki að hann ætti, eða að betra væri.
Held að það sé nokkuð ljóst að Voldemort er ódauðlegur þangað til helkrossarnir eru eyðilagðir, annars hefði Dumbledore reynt að drepa einn sálarbút með því að kasta á hann Avada Kadavra í ráðuneytinu, vísvitandi reyndi hann ekki einu sinni að drepa hann.