Ég kynntist Harry Potter fyrir ekki svo löngu, og síðan þá beið ég alltaf eftir útgáfu næstu bókar og las hana svo. Þegar þær voru allar komnar átti ég þær allar, og las þær allar í röð. Eftir það las ég þær allar í röð á ensku, og mér finnst þær betri þannig. Svo ég er búin að lesa þær allar a.m.k. þrisvar.
Svo er ég búin að lesa Fangann frá Azkaban fjórum sinnum, Viskusteininn að ég held fimm sinnum, Fönixregluna fjórum sinnum.
Næsta haust ætla ég að lesa þær aftur é ensku.