Ef dumledore á að vera enn á lífi eins og svo margir virðast halda að þá væri Snape dáinn! Skiljið þið ekki! Snape VARÐ að drepa Dumbledore vegna þess að hann gerði heitið þarna við mömmu dracos…þarna í 2 kafla í 6 bók að ég held? og samkvæmt því myndi Snape deyja ef hann myndi ekki gera hvað sem hann gæti til að klára það sem Draco átti að gera og það var að drepa dumbledore… þannig að ef að dumledore væri á lífi að þá væri snape það ekki. Auk þess var tími dumbledors kominn því Harry verður að berjast við Voldemort sjálfur í síðustu bókinni, án hjálpar frá Dumbledore. Svo eru líka fleiri sannanir að t.d Harry losnaði úr álögum Dumbledors þegar Snape drap hann og það þýðir að hann var dáinn en það er svo sem hægt að koma með einhverjar kenningar í kringum það? en svo var líka komið málverk inn á skrifstofu dumledors, málverk af honum sjálfum! Það hefði nú sennilega ekki komið nema afþví að hann er dáinn? Dumledore er dáinn…þannig er nú það, það virðist bara vera frekar erfitt að sætta sig við það því hann var svo stór persóna og maður vill ekki að hann fari! En hann á samt eftir að koma Harry til hjálpar…með þánkalauginni sinni auðvitað! þar eru hugsanir Dumbledors :) En vá hvað maður getur pælt í þessu!