Takk…
Ég hafði hugsað mér að skrifa einn í dag (15. júní) og reyna að senda inn, hef undanfarin tvö ár (minnir mig, alla vega í fyrra) sent inn spuna kafla á afmælinu mínu og það er ágæt hefð.
Ágætt að gera eitthvað skemmtilegt á afmælinu sínu og það er drullu gaman að skrifa ég gef mér bara allt of sjaldan tíma til þess.
En ég þurfti að snúast í ýmsu í dag og fékk svo líka þennan dýrindis gítar í afmælisgjöf svo ég er búin að vera að spila í allan dag þegar færi gefst og var svo með stórt matarboð í kvöld.
Er komin með stórar blöðrur á fingurnar svo ég á erfitt með að skrifa núna…
Svo er ég að fara að vinna í sumarbúðum í næstu viku og verð þar meira og minna næstu fimm vikurnar svo ég veit ekki hvort það bólar nokkuð á spunanum mínum fyrr en í fyrsta lagi í byrjun ágúst.
Ég vona samt að ég komist í að skrifa fyrr… sjáum hvað setur.
Takk fyrir allan ykkar stuðning, það er ómetanlegt að vita að einhver kann að meta það sem maður gerir.
Þið eruð yndisleg.
Kveðja
Tzipporah