Ég held að flestar bækurnar hafi byrjað fremur leiðinlega, ég man þegar ég var að byrja á númer 4 (minnir mig) þar sem Harry er að dreyma (kemur ekki fram nærri strax að hann er að dreyma þetta) einhvern gamlan kall sem var garðyrkjumaður hjá fólki sem var dáið. Ég var búin að reyna að klára þennan kafla heillengi (sem er kaldhæðni þar sem ég var búin að bíða svo spennt eftir þessari bók) ég var farin að halda að ég væri ekki að lesa Harry Potter (en það gat ekki staðist þar sem bókin hét Harry Potter og Eldbikarinn) en svo hélt ég áfram og sá ekki eftir því að hafa haldið áfram. Svo gangi þér vel með bókina!