Þú fyrirgefur, ég hef öruglega lesið bókina mun oftar en þú, með fullri virðingu og ég ætla ekki að móðga þig. Ég hef lesið þessar bækur á 3 tungumálum og farin að læra villurnar í þýðingunum. Auðvitað sá ég hvað vantaði mikið, auðvitað sá ég allar villurnar. En í fyrsta skipti reyndi ég að hugsa um að þetta væri bíómynd, ekki bókin, vildi ég alla söguna þá skildi ég lesa hana.
Og viti menn það tókst, og þessi mynd er meistaraverk ef þú hugsar um hinar þrjár sem eru það illa gerðar 7 ára frændi minn gæti leikstýrt betur.
Það er ekki mín ætlun að móðga þig eða neitt annað, ég er bara að reyna að segja mitt álit. Ég er búin að vera virkur notandi hér á þessari síðu í að verða 2 ár, lengur var ég óvirk og þorði ekki að segja mitt álit vegna lítils sjálfstraust.
Ég gerði fjölskyldu mína og vini brjálaða þegar þriðja myndin kom út, meira að segja netvini, vini á þessari síðu, því allt sem ég gat séð við myndina var ein stór mistök jú vissulega var fullt í þessari mynd sem gerði mig jafn pirraða, jafn reiða og fúla yfir gerð myndarinnar, en ég reyndi að horfa á hana með nýju hugafari. Og það finnst mér að þú ættir einnig að gera.