Nú vil ég vita hvort að bókin standi undir væntingum og hvort að það sé erfið enska fyrir 13 ára dreng að lesa…endilega svarði þið sem hafðið klálrað bókina en ég vill ENGA SPOILERA!
Hún er kannski pínu þung fyrir 13 ára en þú ættir alveg að geta lesið hana - vertu bara með orðabókina nálægt (ef það er eitthvað sem þú skilur ekki) - og þú hefur rosalega gott af því að lesa þessa bók á ensku :o)
Tja ég las Harry Potter and The Chamber Of Secrets á ensku þegar ég var 11.ára, og er ekki búinn að búa úti eða neitt, þannig að ég held að þetta sé ekkert ofboðslega erfitt neitt.
OKI KÚL!!!! ég hef aldrey treyst mér í þetta…ég hef lesið einn eða tvo kafla í fönixreglunni og skildi þá en ég hélt að það væri bara af því að ég hafði lesið hana á Íslensku
Ég er að verða 14 og las hana og skildi nú flest allt, svo las ég líka samt Fönixregluna á ensku, átti frekar erfitt með það en það reddaðist samt :) Man ekki samt hvenær hún kom út :/
Ég er 14 ára og hef aldrei lesið bók á ensku en allt er hægt þegar viljinn er fyrir hendi og ég byrjaði á henni í gærkveldi og kláraði hana um 1 leytið í dag
Það er líka ekkert mál að koma hér inn á korkana og spyrja um útskýringar ef það er eitthvað sem vefst fyrir þér… Það er fullt af fólki sem er alveg til í að hjálpa.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..