Jæja, ég var að spá hvort að einhverjir hugarar ætla að mæta á Akureyri? Er röð þar? Sjálf er ég búin að panta bókina, og fæ hana í næstu viku en er að spá hvort að maður skelli sér í smá stemmingu niðri í bæ. =)
Ég var einmitt að spá í því sama. Ég veit að bókin verður gefin út kl 12 í Bókval en það er spurning hvort það verði eitthvað meira. Ég verð nú bara ánægð ef bókin kemur!
Ég væri svo til í að vera í stórri röð með fullt af fólki og svona eins og er út um allt nema á ak..ehh..ég ætlaði bara að bæta þessu við! Samt nenni ég ekki að mæta EIN í röðina. Ferð þú Potter01?
Núú núú… Verður eitthvað hugasvæði til að hitta hugara? ;) Er ekki að fara kaupa bókina, fæ hana senda um helgina =) langar bara að mæta í stemminguna =)
Jú jú og Rakel89 held ég =) Ekkert smá partý ;) Það mæta náttúrulega fleiri, ekki endilega hugarar. Þekkir nokkra sem ætla niður í bæ. Hvenær á að mæta?
Það er pæling :) btw…ég ætla að mæta… það að ég er í sveit setti smá strik í reikningin, en það verður náð í mig svo ég komist í bæinn :) Svo við mætum saman ég og BudIcer…eða ég veit ekki betur :P
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..