Ég er sammála ég nenni ekki að lesa þessa spuna en les greinarnar sem koma hingað inn, er aðalega að skoða korkana á þessu áhugarmáli.
Ég hef verið að velta því fyrir mér hvort hægt að að skilja þetta eitthvað að, þannig að Áhugaspunarnir verði sér og greinarnar annarstaðar. En ég held hinsvegar að formið hér á huga bjóði ekki upp á það :(
Ég vil taka það fram að ég hef ekkert á móti spununum, enda halda þeir þessu áhugarmáli vel virku það væri bara gaman að fá inn fleiri greinar. Enn fremur veit ég að það þýðir ekki að byðja aðra um greinar þegar maður skrifar ekkert sjálfur ;)
Svo ég hvet alla þá sem vilja fá fleiri greinar hérna inn að kvarta ekki við þá sem eru duglegir að semja spuna heldur setjast niður og skrifa eina grein og senda inn.