Þó að sumir spunar séu bannaðir þá þýðir það bara að það komast mikið betri spunar í gegn. Ég er endalaust að skrifa, hvort sem þið lesið það eða ekki:P, en það sem ég er að skrifa á líka að vera vel skrifað og ótrúlega flókið… þannig… gulla verður að hjálpa mér!
Það að koma með fljótt kafla þýðir ekkert endilega að þetta séu góðir kaflar. Þegar það tekur eitt kvöld að búa til kafla, ja þá er ég ekki alveg viss um að kaflinn sé þess virði að lesa, aðallega upp á gæði.
Þessir spunar sem eru nú í gangi eru virkilega góðir og það tekur lllaaannngggann tíma að skrifa sögu sem er góð, í hæfilegri lengd og vel gerð málfræðilega og stafsetningalega séð. Ég er búin að vera að skrifa næsta kafla hjá mér í mánuð:P og er ekkert að verða búin!
kv.
Fantasia