Jú það er akkurat til þess sem þessi korkur var settur upp. Þar sem greinakubburinn er nú einungis fyrir útvalda spuna og þá sem okkur finnst vera bestir þá er þessi korkur hugsaður sem nokkurnskonar æfingastaður fyrir þá sem vilja bæta sig. Þeir sem fá höfnun mega gjarnan birta spunann sinn hér og þá geta fleiri lesið þá yfir og gefið þeim ráðleggingar. Ráðleggingarnar eiga þó að vera á vinsamlegum nótum, til uppbyggingar en ekki til að rakka fólk niður.
Auk þess að vera æfingasvæði áhugaspunahöfunda má að sjálfsögðu ræða allt sem viðkemur áhugaspunum hér á þessum korki.
Kveðja
Tzipporah