Gættu þín Snitch, þú ert sjálfur á mörkum nöldurs.
Við erum held ég öll sammála um að það vanti greinar en vertíðin er búin. Hún kemur alltaf strax á eftir bókunum og myndunum, sem eru uppfullar af nýjum hugmyndum. Nú eru hins vegar allir búnir að melta allar bækurnar og hafa ekkert meir að segja.
Þessvegna tók Tzipporah sig til og bað nokkra penna um að taka að sér að skrifa greinar sem eru sendar undir Persónu mánaðarins, The Quibbler og fleiri en eitthvað virðist þessu fólki vanta hugmyndir. Svo eru líka sumir enn í vandræðum vegna nýja kerfisins og geta ekki sent inn.
Ef þú eða aðrir fá hugmynd að grein en nennið ekki að útfæra hana eða skrifa, þá er bara mál að hafa samband við einhvern annan og spyrja hvort sá/sú hafi áhuga. Best væri þó að senda hugmyndina í hugskeyti frekar en í korki til þess að það viti ekki allir af henni og svo hún verði ekki útpæld áður en greinin kemur.
^^Æsa