Hafið þið einhvern tíman, Potteraðdáendur, pælt í því hvort að fimmta bókin gæti einfaldlega orðið ein stór vonbrigði. Það eru gerðar svo miklar vonir til hennar og svo mikil eftirvænting en það virðist ekki til í umræðunni að JK Rowling er höfundur í krísu sem gæti auveldlega lent í því að skrifa sjöhundruð blaðsíður af væminni klisjudrullu, allavegna þætti mér ekkert ótrúlegt að blessunin færi að verða þurrausin, miðað við hversu lengur og lengur það virðist alltaf taka hana að koma þessum doðröntum frá sér.
Nú er hún búin að gefa út fjórar fremru stórar bækur um Harry Potter, hver annari betri og fólk er farið að líta á það sem sjálfsagðann hlut að manneskjan geti toppað sig og vel það í hvert skipti, og þeir eru nú því miður ekki margir sem myndu ekki kikna undan slíku álagi.
Jæja… ætli maður verði ekki að bíða einhverja 5imm daga þangað til og bíða og sjá; og vona það besta…<br><br>
[ hnitmiðaður náungi.
[ hnitmiðaður náungi.