Ekki að ég sé að leggja neinn dóm á hvernig Viddi dæmdi, en miðað við hvernig liðin spiluðu leikinn var hann og línudómarar hans sjálfkrafa bestu mennirnir á svellinu.
Ef ég ætti að velja versta manninn, þá væri það sennilega bjarnarguttinn sem sleppti sér á bekknum, bæxlaðist eins og krossfiskur og ætlaði að sýnast stór og fara eitthvað inná svelli, þar til Sergei náði í hann og sagði honum að hann ætti ekki að fara inn á svellið núna, 4. lína spilaði bara í úrslitakeppninni.
Æi, það er nú varla hægt að velja einhvern slakastan samt, það eru svo margir sem koma til greina hjá báðum liðum, Binni kemur auðvitað sterklega til greina, var að spila fínan leik og kúkar svo í pungbindið og fer vonandi í 68 leikja bann, ekkert að gera með svona pakk í íshokkí á Íslandi.
Kenna dómaranum um að bæði lið spiluðu skítaleik, langsótt en alveg týpískt.
massi