Loksins er komið að því að kvennaliðin takast á!! Á morgun laugardag (6.mars) kl. 17:15 eigast við kvennalið Bjarnarins og kvennalið Akureyringa. Þessi lið munu einnig mætast á sunnudag, á sama tíma. leikirnir fara fram í Egilshöll.
Leikir þessara liða eru undantekningarlaust hörku spennandi. Nánast allir leikirnir hafa endað með eins marks mun!!
Mæli með að sem flestir láti sjá sig og styðji sínar konur!!