Þetta er Borgartún 21. Þetta er steypt bílastæði sem liggur við hliðiná Sæbrautinni. Önnur hús í nágrenninu er t.d. Heimilistæki og Höfði (hvítt hús sem stendur eitt og sér útá túni) en þetta bílastæði er einmitt við hliðiná Höfða.
Fyrir þá sem rata ekkert í Reykjvík: Ef þið farið frá Laugardalslauginni (sem allir hljóta að vita hvar er), þá keyrið þið út Sundlaugaveginn (vegurinn fyrir framan sundlaugina, þar sem pylsusalan er) í átt að miðbænum. Þá komið þið að ljósum þar sem strætó eru með geymslupláss á hægri hönd. Farið yfir ljósin (þar er Essó bensínstöð á hægri hönd og hótel á vinstri hönd) og haldið áfram yfir tvenn hringtorg (eitt strax eftir bensínstöðina og annað þar sem Borgartún mætir Nóatúni) og mjög fljótlega sjáið þið svart hús sem er númer 21. Þar beygið þið inn og farið á bak við húsið og uppá bílastæðið.
Þar verða líklega einhverjir í kvöld að spila street hokki… Ca kl 19…