Kaupir tvær TRS snúrur. Gætir líka notað venjulegar gítareffectasnúrur, en þær eru ekki alveg jafn pro.
http://www.americanmusical.com/ProductImages/Large/p28561.jpgTengir þær úr Main L og Main R úr mixernum í Input 1 og Input 2 á mboxinu.
Ýtir á báða pad takkana aftan á mboxinu og hefur alla hina úti.
Notar svo mixerinn eins og venjulegan mixer og mboxið eins og þú sért að taka upp sterio rás. Byrjaðu bara með gainið alveg niðri á mboxinu en prófaðu líka að hafa það á punktinum fyrir miðju á báðum rásum. Annað hvort er “rétt” (s.s. ekki heilagt).
Þú getur líka mixað sér á hægri og sér á vinstri rásina, t.d. söng á hægri, hljóðfæri á vinstri og tekið þá upp tvær mono rásir, t.d. til að setja reverb á sönginn eftirá í tölvunni.