Nú hef ég ekki hugmynd um það hvaða græjur þú ert að nota..
Einhvertíman þá gerði ég þetta þannig að ég var með mic á einni rás á mixernum hjá mér.. sendi hljóðið ekki í L-R, buss eða direct-out.. faderinn alveg niðri. Sendi hljóðið eingöngu í gegnum Aux send sem fór beint í headphone.. annað hvort hækkarðu bara og lækkar í þessum Aux send þegar að þú þarft að tjá þig eða notar mic með on/Off..
Mundu bara að slökka alltaf á honum á meðan að það er performans í gangi.. truflandi og gæti valdið leiðindum.. Setningar eins og.. þetta var falsk, hann getur ekki trommað.. hafa stútað öllu vibi og meira að segja splundrað hljómsveitum..