Sælir félagar, ég tók mig til fyrir ári og ákvað að skella mér í smá project eftir að hafa heillast að Fender Stratocaster Road Worn línunni. Hugmynd mín var þó örlítið ýktari heldur en þessir settlega eyddu Fenderar.
Ég varð mér úti um Squier Stratocaster nánar tiltekið 20 ára Squire afmælis affinity týpu, hann var varla spilhæfur þegar ég fékk hann í hendurnar fyrir 12 þús.
Hlutir í gítar :
Fékk mér tvo nýja gorma, söðla, nýja potta, switch, input, þriggja laga pickguard og pickupa sett úr USA Fender Strat.
Fyrir útlitið :
Skellti mér því næst útí BYKO og keypti saltsýru og vatnssandpappír.
Heima átti ég til salt, oliívu olíu, espresso kaffi til að bæta útlitið og einnig skóáburð sem nauðsynlegur er til að ná réttum lit og áferð.
Verkefnið byrjað :
1. Að dangla á vel völdum stöðum í gítarinn þar sem líklegt er að maður reki hann í til þess notaði ég nokkur verkfæri hamar, skrúfjárn og sporjárn svo bjó ég til lakk rispur og chip með hníf.
2. Að matta allt boddýið með vatnspappír og búa til slitfleti og ýkja þá, svo borið olíu á boddýið til að dekkja það aftur.
3. Járnhlutir lagðir pússaðir og lagðir í sýrubað, hér verður að passa uppá tímann því söðlarnir sem voru í gítarnum gufuðu bókstaflega upp.
4. Skella hlutum sem eiga að vera ryðgaðir í saltlausn og láta liggja útí í nokkra daga.
5. Pússa upp pickguard, knobs, pickup cover og rispa líka með hníf.
6. Pússa hálsinn og taka lakk af honum.
Hér er allri grunn vinnu lokið.
-----
7. Samsetning.
-----
*Að ná útlitinu að gítarinn sé eldgamall, mikið notaður og hafi aldrei verið þveginn og sjænaður(eða of mikið)
8. Hálsinn fékk á sig nokkrar umferðir af rótsterku espresso til að byrja með og svo dökkan skóáburð sem ég leyfði svo að harðna í nokkra daga. Hausinn á honum tók ég svo og brenndi smá með kveikjara.
9. Pickguardið fékk á sig sama skammt og hálsinn og reyndi ég að búa til uppsafnaða drullu á tökkum og í kringum þá og pickup cover.
10. Pússaði með vatnspappír kringum pickguard til að gera rispur trúverðugari og svo olía á lakkið eftir á.
11. Tálgaði smá logo í hausinn á honum.
Tími :
4-5 kvöldstundir sem fóru í þetta
Lokaútkoma:
Gítar sem lítur út fyrir að hafa lent í einhverju misjöfnu og er með stríðsáverka eftir mikið rokk.
Heilt yfir var þetta verkefni mjög skemmtilegt og gítarinn kemur mér skemmtilega á óvart, beinn og góður háls og heldur vel stillingu.
Vona að þið hafið gaman af þessu.
Kv. Björn Ingi

Gibson Les Paul, Epiphone Les Paul & Peavey Classic 4x10, Fender Hot Rod Deville.