Ja, ég hlustaði einu sinni mjög mikið á þessa gæja.
Þeir eru nú merkilega slappir hljóðfæraleikarar miðað við að vera búnir að spila í nærri 40 ár, en samt eru þeir eitt skemmtilegasta band sem ég veit um! (Ja, þeir eru nú einu sinni pönk band :P)
Fullt til af gömlum upptökum með þeim sem gaman er að skoða. Mér finnst reyndar persónulega að bestu lögin þeirra hafi komið á því tímabili sem Danzig var enn í bandinu, en eftir að hann hætti fannst mér þeir dala frekar mikið.
Samt sem áður fíla ég solo tónlistina hans ekkert sérstaklega.
Allavega drulluhressir fauskar og mjög gaman af þeim að mínu mati :)