Var að hjálpa pabba félaga míns að flyta skrifborð og þarna í herberginu hjá honum situr þessi elska, rykfallin og skýtug. Þá sagði hann, ég vissi að þú mundir verða ánægður með að koma hingað inn(það var nánast heilt stúdíó þarna, og einn annar gamall marshall bassamagnari) og ég spurði hvort ég mætti fá hann lánaðan og hann sagði já og ekkert vera að flýta þér að skila honum, hann hefur ekki verið hreyfður í 5-6 ár :D
Bætt við 28. júní 2007 - 21:37
Varð soldið forvitinn, það stendur nefnilega Jan Mayen ofan á honum þannig að þetta gæti verið magnari sem þeir hafa notað en þarf að forvitnast meira um það…