Já svona gerist þegar menn hafa aðeins of mikinn frítíma. Hér má sjá eitt stykki ukulele gert úr u.þ.b 10 þúsund eldspýtum og rúmlega 900 grömmum af lími. Gaurinn sem smíðaði þetta á víst heimsmetið fyrir að hafa smíðað 10 hljóðfæri úr 106000 eldspýtum allt í allt. Meira um gaurinn og fleiri myndir er hægt að finna hér http://www.catfish1952.com/MatchstickMan.html
Algjör snilld, sá þetta í Guinnes þættinum. Og það merkilega er að gæjinn hafði enga þjálfun í hljóðfærasmíðun. Hann fór bara um og tók mál af hljóðfærum í verslunum og byggði þetta svo á meðan hann var á sjó.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..