Þetta snýst um að auka færni sína á hljóðfærinu, maður þjálfar hendina (yfirleitt notað á þá vinstri meira) fyrir fingraborðið og eykur styrkinn í fingrunum.
Stórir magnarar hjálpa manni ekki að koma tilfinningum sínum á framfæri, samt kaupa margir stóra magnara og fleira.
Ég er persónulega með mjög veikan litla putta á vinstri hendi sem gerir mér erfiðara fyrir að taka sóló og annað í þeim dúr, þetta myndi hjálpa mér svakalega m.a. við að koma tilfinnungum mínum á framfæri því ég væri með 4 putta ekki 3 og 1/2 sem gætu gert það.
Hvað ertu að meina? Ekki eins og þú verðir að spila hratt ef þú notar svona hahaha.
Það er hinsvegar staðreynd að ef þú getur spilað hratt með öryggi þá ertu öruggari þegar þú spilar hægt. Bara smá staðreynd fyrir þig að melta. Og svona alhæfing hjá þér eins og að allir sem nota svona nota þetta bara til þess að geta spilað hraðar fær mig til að glotta.
Var ég að skjóta á gítarleik þinn? Nei, frekar lágkúrulegt hjá þér eins og alltaf. Skiptir ekki máli hvað það er, alltaf þegar maður svarar þér þá svararðu með skætingi tilbaka. Það voru fullt af öðrum gaurum að segja það sama og ég og þú drullar yfir mig, þetta segir mér ýmislegt og ég kæri mig ekki um að tjá mig frekar við þig núna né í framtíðinni.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..