Nei þeir rispast við það að þú spilar á þá, trúðu mér. Ég hef átt Iron Cobra Power Glide og hann flagnaði allur við það eitt að ég tók hann af settinu, henti honum ofaní tösku aftur og aftur og aftur og spilaði hraða og fasta bassatrommutakta á hann.
Aldrei myndi ég fjárfesta í pedölunum útaf útliti. Enginn sér þetta nema þú (þar sem fæstir hérna eru að spila á Rock in Rio þar sem myndavélar eru á þér, varpandi þér uppá 200" risaskjái fyrir framan hálfa milljón manns).