Hehe, eigandi þessa trommusetts (og þetta er btw gamla 2004 trommusettið hans, þú ættir að sjá 2006 gerðina, sérð það inná www.terrybozzio.com) er Terry Bozzio og hann spilar einmitt með sinfóníum og heldur tónleika einn síns liðs. Það er einfaldlega af því að hann spilar enga takta á þetta monster, heldur heilu lögin. Rythmann telur hann oftast með fótunum og leggur hann svo melódíur ofan á þá með höndunum (þótt ég hafi nú reyndar séð hann spila melódíur með fótunum).
Hann er alltaf að stækka við sig og alltaf að kanna ný svið í tónlist, hvort sem það er í slagverksleik eða öðru. Hann er einfaldlega einn af þeim allra bestu frá upphafi.