Voðalega erfitt að prófa þennan gítar þar sem þeir eru aðeins tveir eða þrír í heiminum, einn í eigu gítar“tech”sins hans Kirk, og restin í eigu hans sjálfs. Bannað er að framleiða eftirlíkingar þar sem Kirk er búinn að eigna sér höfundarréttinn á artworkinu.
Ég ætla að leyfa mér að fussa og sveia yfir fólkinu sem fussar og sveiar yfir þessum gítar. Þetta er ekki eitthvað sem ég myndi vilja eiga, en mér finnst gaman þegar gítarar eru ekki bara einlitir svartir. Gaman að lífga upp á tilveruna með því að sameina tónlistina og málaralistina á þennan hátt.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..