Glæsilegur kassagítar, Al Di Meola er einn af mínum uppáhalds og án efa einn færasti gítarleikari allra tíma, hann spilar að mínu mati alveg jafn vel á rafmagns- og kassagítar.
Ég held samt mest upp á plöturnar sem hann gerði á 8. áratugnum (70's) bæði á sólóferlinum og einnig með “Return to Forever”, svo má auðvitað ekki gleyma plötunum sem hann hefur gert með gítarsnillingunum Paco de Lucía og John McLaughlin. Ég leyfi mér að fullyrða að “Friday Night in San Francisco” er besta live kassagítarplata sem til er.
Æfingin skapar meistarann