Það eru auðvitað margar leiðir til að tjá sköpun sína í tónlist, hvort sem það er cover á böllum, eigin efni, tónleikahald, bílskúrs-semja-pælingar, nú eða að sitja einn við settið sitt og pæla og pæla.
En mjög skemmtilegt sett annars, ég leit ekki vel á það í fyrstu. Líka sjaldgæft að sjá alhvít trommusett nú til dags hjá okkur unglingunum. Annars fer ég ef til vill í það að senda inn mynd af settinu mínu hingað. Ég veit auðvitað ekki hvað fólki mun finnast en ég hef lúmskan grun um að það slefi eins og það hefur aldrei slefað fyrr, það er að segja ef fólk hér kann að meta alvöru hljóðfæri.