Ég ætla að taka undir það sem E666 sagði, BC Rich hafa áunnið sér slæman orðstýr vegna þess að þeir eru ekki með neinar “miðlungs” græjur, bara ódýra Kóreudótið og svo rándýra (og að sama skapi mjög góða) Custom Shop gítara.
Þessir menn sem eru að hrauna yfir BC Rich hafa prófað þá fyrrnefndu og þar sem hinir eru ekki auðfáanlegir virðast þeir bara “gleyma” þeim (eða einfaldlega vita ekki af þeim) og dæma fyrirtækið algjörlega út frá því.
Það gáfulegasta sem BC Rich gæti gert til að bæta úr þessu væri að fara að “verksmiðjuframleiða” gítara í heimalandinu (Ameríku held ég alveg örugglega), eitthvað í verðflokknum $1000-$2000, þá myndi álit manna á þessu fyrirtæki stórbatna. Sennilega myndi það samt ekki borga sig til lengri tíma því líklegast yrði salan á þeim samt engin snilld þar sem lookið virðist fæla menn frá, annað hvort elska menn þetta eða VIRKILEGA hata það.