Geddy Lee, söngvari, bassaleikari og hljómborðsleikari Rush með græjurnar sem hann notaði í kringum 1980. Hljómborðin eru annaðhvort Moog eða Oberheim, á gólfinu eru Moog Taurus bassapedalar og bassinn/gítarinn er Rickenbacker 4080.
Þessi Rickenbacker 4080 bassi/gítar eins og þeir kölluðust er reyndar ekki sérsmíðaður, þeir voru framleiddir á árunum 1975-1990, ýmist með 6 strengja gítar (eins og þessi) eða 12 strengja sem var mjög sjaldgæft og kölluðust þeir 4080/12. Geddy Lee á einn 4080/12 og notaði hann miklu frekar á tónleikum heldur en þennan.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..