Trompet til sölu
Ég keypti trompet 2008 frá vinkonu minni sem var nýbúin að kaupa hann í Bandaríkjunum, ég spila sjálf á básúnu og notaði trompetinn ekki nema 2-3svar. Hún spilaði líka sjálf á franskt horn svo hann átti ekki marga eigendur en hann á skilið að láta spila á sig. Hann er í góðu lagi, og lítur mjög vel út. Hann er í flottri tösku sem þú getur haldið á og sett á bakið, mjög hentugt. Ég á byrjunarhefti fyrir trompet, ásamt einhverjum lögum sem voru í töskunni frá skólahljómsveitini minni. Það er einhver olía, tuska og smyrsl í töskunni. 
Óska eftir tilboði
Sendið bara skilaboð með verðtillögu eða póst á signy130@gmail.com
Kveðja