Afar hi class production sánd, fyrir minn smekk er þetta of mikið unnið en það er mjög skiljanlegt að þið vinnið tónlistina ykkar í sem mestum gæðum, ekkert skrítið við það. Að vísu fannst mér flott hvernig söngurinn hljómaði, og þið hafið oft áhugaverð gítarsánd í lögunum ykkar.
Lagið sjálft finnst mér svona allt í lagi, þið kunnið augljóslega að spila á hljóðfærin ykkar og semja.
Mér finnst ég ekki ennþá finna neitt spennandi við þessa tónlist, en að öðru leyti er þetta gott stöff. Fín lög, góður hljóðfæraleikur, góður söngur og gott sánd.
Það sem mér finnst óspennandi við þetta allt er líklega hvað þetta hljómar voðalega útvarpsvænt. Mjög unnið, söngvarinn hefur þennan popptónlistarkarakter sem sumir hafa kallað Eurovisionlegt, og ekki frábæran enskuframburð.
Held að þetta sé bara einfaldlega ekki minn tebolli, en samt vel af sér vikið.